Æfingabúðir

Æfingabúðir Listhlaupadeildar Bjarnarins 2008

19.júlí - 31.júlí

­­­­­­­­­­­­­­­________________________________________________________________________

 

 

Af hverju æfingabúðir?

  • Á Íslandi loka skautahallir um allt land í hátt í 9 vikur
  • Æskilegt er að keppendur í listhlaupi fái ca 4 vikna frí frá skautaæfingum á ári
  • Afreks-skautarar eiga jafnvel að gera af-ís æfingar í tvær vikur af þeim fjórum sem þeir eru í fríi
  • Listhlaupadeild hefur undanfarin ár farið til Bretlands til þess að þjóna ofangreindum hlutverkum. Slík ferð er mjög kostnaðarsöm (ca. 150 000 kr á barn) og það hafa ekki allir haft tækifæir á að fara í slíka ferð.
  • Sumarið 2008 ætlum við að halda sumarbúðir heima til þess að gefa fleirum kost á að taka þátt og þannig náum við kostnaði einnig niður fyrir hvern og einn þátttakenda

 

Þjáfarar

  • Olga Baranova (FIN) - 8 dagar. Hún er með margra ára reynslu í þjálfun og hefur m.a. kennt á Íslandi áður, talar grunn íslensku.  Hún er einnig með alþjóðleg réttindi sem tæknidómari ISU og hefur dæmt mót á vegum ISU. Hún mun sjá um tækniþjálfun og af ís.
  • Marie Kate O´Conner (USA) - 4 dagar. Hún er með margra ára reynslu í þjálfun og hefur m.a. kennt á Íslandi áður. Hún mun sjá um power-stroking sem stuðlar að auknum hraða og góðri líkamsstöðu. Hún mun einnig sjá um þjálfun ICE-THEATER sem eflir tjáningu, túlkun og framkomu.
  • Erlendina Kristjansson (aðlaþjálfari Listhlaupadeildar Bjarnarins). Hún mun aðstoða Olgu með þjálfun hópa 1 og 2 ásamt því að sjá um prógröm. Erlendina mun einnig stýra þjálfun hóps 3.
  • Sunna Björk - aðstoðarþjálfari.
  • Fræðsla: Helga Olsen
  • Skautatengdar af ís æfingar: Olga, Erlendina og Helga

 

Markmið:

  • Að veita A og B skauturum alhliða prógram þar sem þeir geta haldið sé í formi ásamt því að ná aukinni færni.
  • Að undirbúa A og B skautara fyrir keppnistímabilið 2008-2009
  • Að veita C skauturum grunnþjálfum og undirbúa keppendurm fyrir keppnistímabilið 2008-2009

 

Æfingar - flokkar:

Erlendína gefur upplýsingar varðandi flokkaskiptingar í síma: 697-3990.

 

Hópur 1        19.júlí - 1.ágúst                   13 skautadagar                   Frí 25.júlí

Hópur 2        19.júlí - 31.júlí                     12 skautadagar                   Frí 25.júlí

Hópur 3        19.júlí - 25.júlí                     6 skautadagar                     

 

Hópar

Fjöldi í hóp

Ístímar

Opinn ístími

Af ís

Fræðsla

Einkatímar

Hádegismatur

Samtals

Hópur 1

A og lengra komnir B

Hámark 15

2 klst.

Klukkutími

1 Af ís

1 Ballet

1 tími

Já - kostar auka

Heitur matur - innifalinn

6 tímar

 

Hópur 2

B skautarar

Hámark 20

2 klst.

Klukkutími

1 Af ís

1 Ballet

1 tími

Já - kostar

auka

Heitur matur - innifalinn

6 tímar

Hópur 3

C skautarar

Hámark 25

1 klst.

Nei

1 Af ís

1 Ballet

1 tími

Nei

Heitur matur - innifalinn

4 tímar

 

Skráning

Sendið tölvupóst með nafni, kennitölu og upplýsingum um hóp á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Skráningar þurfa að hafa borist fyri lok maí. Skráning er tekin gild þegar 10.000kr staðfestingargjald hefur verið greitt inn á reikning Listhlaupadeildar Bjarnarins 0115-26-7749, kt. 540291-1289 og kvittun send á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . 

 

Verð fyrir æfingarbúðir 2008

Hópur 1                     48.000kr 

Hópur 2                     44.000kr

Hópur 3                     21.500kr.

 

 

Athugið að takmarkað pláss er í hvern hóp og því mikilvægt að skrá sig sem allra fyrst.