Skautastig
03. Febrúar 2008
Skautastigin skautum regbogannSkautum regnbogann er í umsjón skautafélaga landsins en yfirumsjón er í höndum Skautasambands Íslands. Kennsla í kerfinu fer fram hjá skautafélögunum og byggist á hópkennslu sem framkvæmd er af þjálfurum sem hafa lokið að lágmarki þjálfararéttindi á 1.stigi. Kerfið inniheldur kennsluaðferðir með þrepaskiptum markmiðum í sveigjanlegu og skemmtilegu námsumhverfi, ásamt því að það byggir á fljótu og auðveldu símati sem verðlaunar skautara strax. Aðild að kerfinu kostar 1000kr og greiðist hjá hverju félagi.
Skautum regnbogann veitir skauturum góðan grunn og þjónar bæði skauturum sem hafa áhuga á að nýta íþróttina sem tómstundargaman og einnig þeim sem huga seinna meir að keppni.
Ferlið á Skautum regnbogann
|
Skautum regnbogann
Æfingar |
1. stig Jafnvægi |
2. stig Renna áfram |
3. stig Renna afturábak |
4. stig Brúnir |
5. stig Kraftur |
6. stig Hraði |
7. stig
|
|
Áfram |
|
|
|
|
|
|
Skautað áfram Lokið |
|
Afturábak |
|
|
|
|
|
|
Skautað afturábak Lokið |
|
Stopp
|
|
|
|
|
|
|
Stopp Lokið |
|
Snúa við |
|
|
|
|
|
|
Snúa við Lokið |
|
Snúningar |
|
|
|
|
|
|
Snúningar Lokið |
|
Stökk |
|
|
|
|
|
|
Stökk Lokið |
|
Listfengi |
|
|
|
|
|
|
Listfengi Lokið |
|
Lokið |
1. stig Lokið |
2. stig Lokið |
3. stig Lokið |
4. stig Lokið |
5. stig Lokið |
6. stig Lokið |
7. stig Lokið |
Skautum regnbogann leggur höfuðáherslu á að byggja upp grunnskautafærni á markvissan hátt. Stigin eru sjö og innihalda margvíslegar æfingar sem allar stuðla að góðri undirstöðu innan íþróttarinnar. Farið er frá því einfalda til hins flókna í öllum áföngum kerfisins og hentar kerfið öllum nýjum skauturum sama hvort um er að ræða algera byrjendur eða aðeins lengra komna. Þegar skautari hefur lokið hverju stigi fyrir sig í kerfinu fær skautarinn barmmerki sem viðurkenningu og eru þau í sitt hvorum litnum, eftir því hvaða stigi verið var að ljúka.
Skautum regnbogann skiptist eins og áður segir í 7 stig. Hægt er að fara í gegnum stigin óháð tíma eða röð í samráði við þjálfara.
Þegar skautari hefur náð öllum stigunum hjá félagi sínu, tekur hann sitt fyrsta próf hjá ÍSS.
Undirstöðuatriði íþróttarinnar eru eftirfarandi:
- Líkamsburður og líkamshalli
- Notkun á hnjám - að beygja hné
- Notkun á ökklum
- Rennsli
- Brúnir, notkun brúna og notkun líkamsþyngdar
- Taktur og samhæfing
- Aukning á hraða og takti smám saman
- Rétt spyrna

