Æfingar
07. Febrúar 2008
Það sem börn og foreldrar læra á Skautastund:
- Aukið jafnvægi, skautaíþróttin er góð leið til að þjálfa jafnvægisskyn og samhæfingu líkamans.
- "Að uppgvöta líkamann!"
- Grunnstöður og að miðja þyngdarpunktinn.
- Hliðarspor.
- Hliðarskautun.
- Upphafsstöðu, að skauta fram og til baka.
- Renna á öðrum fæti og ýta með hinum.
- Skauta áfram.
- Að skauta aftur á bak
- Að stopa!
Réttu skrefin á ísnum,
eru undirstaða að frekari árangri í skautaíþróttum
Að skauta áfram:
- beygið ykkur í hnjánum, verið útskeif, ýtið niður og út með innri egg skautans og réttið úr fætinum
- skautum er haldið lágt og verið bein í baki
- beygið hné vel og hafið þungann á miðjum rennslisskautanumAð skauta afturábak:
- beygið hné, tærnar saman og ýtið hælnum út með ynnri egg skautans
- færið þungann á rennslisfótinn
- éttið vel úr fætinum sem þrýst er út
- hafið hné þess fótar sem rennur, beygt
- færið fótinn sem þrýst var út, að hinum
------Myndir hér-----
Að stoppa:
Stoppið með plógi, áfram
Stoppið með plógi afturábak
"Hokkí stopp" með snúningi 90 gráður og "sköfu"
------Myndir hér-----
Snúningar:
Krappir snúningar:
- skautum haldið vel í sundur, hné beygð
- færið þungann á ytri egg á innri skauta
------Myndir hér-----
Áfram-afturábak snúningur:
- hné beygð
- lyftið hægri skauta, snúið mjöðmum og öxlum til hægri
- setjið þungann á vinstri fót
- snúið hægri skauta 180 gráður svo hælar snúi saman
- haldið áfram að snúa mjöðmum og öxlum 180 gráður þar til að þið snúið afturábak, setjið hægri fót niður
- lyftið vinstra fæti og snúið afturábak
- þegar skautum er snúið, lyftið þeim, ekki skrapa ísinn------Myndir hér-----
Krossun:
Áfram:
- þungi á ynnri skauta, lyftið ytri skauta og krossið, fót yfir fót
- ýtið með ytri brún innri skauta til að fá aukinn kraft------Myndir hér-----