Línuskautaskóli

LÍNUSKAUTASKÓLI

Námskeiðin eru fyrir krakka á aldrinum 6-13 ára. Námskeiðin eru frá mánudegi til föstudags kl: 8:30 -16:00. Kennd er grunnskautun á línuskautum
og spilað línuskautahokkí. Aðrar íþróttir s.s. körfubolti, bandy, fótbolti og fimleikar eru einnig hluti námskeiðsins. Þá verða nokkrir tímar í jóga.
Lögð er áhersla á að efla vináttu og samskiptahæfni krakkanna.
Þátttakendur verða að koma með eigin línuskauta. Á hverju námskeiði er farið tvisvar í sund. Heit máltíð í hádegi er innifalin í námskeiðsgjaldi.
Námskeið 1             9. júní - 13. júní
Námskeið 2             16. júní - 20. júní
Hvert vikulangt námskeið er boðið á 10.700 kr.
Við skráningu á námskeið er nemendum skipt upp í byrjendahópa og lengra komna.
Skráning í línuskautaskólann hefst 1. apríl í síma 594 9696 eða HÉR .
Upplýsingar veitir Sergei Zak, gsm 847 5366, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.