Almennar upplýsingar

Almennar upplýsingar um flokka Listhlaupadeildar

Listhlaupadeilda Bjarnarins býður öll börn velkomin á æfingar deildarinnar. Við erum með fjölbreyttar æfingar og flokkaskipting okkar ætti að henta öllum þeim sem hafa áhuga á að leggja stund á skautaíþróttina.

 

1.flokkur

Byrjendur innan íþróttarinnar frá 5 ára aldri. Hér eiga allir að geta fengið kennslu við sitt hæfi þar sem flokknum er getu- og aldursskipt í smærri hópa.

 

2.flokkur

Lengra komnir byrjendur frá 5 ára aldri. Í þessum flokki verður smátt og smátt farið í það að undirbúa iðkendur fyrir keppni og kynna íþróttina fyrir iðkendum með áframhaldandi þátttöku innan íþróttarinnar að leiðarljósi.

 

3.flokkur

Unglingahópur frá 12 ára aldri þar sem komið er á móts við eldri byrjendur sem eru tilbúnir til þess að stíga lengra inn í tækniheim skautaíþróttarinnar.

 

4.flokkur

Æfingaflokkur fyrir keppendur í 8 ára og yngri C ásamt 10 ára og yngri C. Hér eru einnig iðkendur sem stefna að keppni í áðurgreindum keppnisflokkum í náinni framtíð.

 

5.flokkur

Æfingaflokkur fyrir keppendur í 12 ára og yngri C, 14 ára og yngri (Novice) C, 15 ára og eldri (Junior) C ásamt 18 ára og eldri (Senior) C. Hér eru einnig iðkendur sem stefna að keppni í áðurgreindum keppnisflokkum í náinni framtíð.

 

6.flokkur

Æfingaflokkur fyrir keppendur í 10 ára og yngri C sem stefna að Grunnprófi Skautasambands Íslands í náinni framtíð.

 

7.flokkur

Æfingaflokkur fyrir keppendur sem lokið hafa Grunnprófi Skautasambands Íslands og öðlast keppnisrétt í flokkum 10 ára og yngri B og 12 ára og yngri B.

 

8.flokkur

Æfingaflokkur fyrir keppendur Skautasambands Íslands í keppnisflokkum Novice A og B ásamt Junior A og B. Hér má finna þá iðkendur sem lengst eru komnir innan íþróttarinnar.

 

Skautastund

Tíu vikna námskeið fyrir leikskólabörn. Markmið flokksins er að kenna grunnatriði skautunar í gegnum leik þar sem hver og einn fær notið sín. Þjálfari þessa hóps hefur lokið prófi frá Kennaraháskóla Íslands í leikskólafræðum ásamt því að hafa lokið þjálfaramenntun á 1.stigi hjá ÍSÍ og ÍSS.

Fullorðinskennsla

Tíu vikna námskeið fyrir fullorðna sem langar að ná tökum á helstu grunnatriðum íþróttarinnar. Hér gefst fullorðnum tækifæri á að læra í jafningjahópi undir leiðsögn reynds þjálfara sem lokið hefur þjálfaramenntun á 1.stigi hjá ÍSÍ og ÍSS.

Kennsla ætluð fötluðum

Tíu vikna námskeið fyrir fatlaða einstaklinga á öllum aldri. Nú gefst fötluðum einstaklingum tækifæri á að leggja stund á skautaíþróttina í jafningjahópi. Flokknum er skipt upp í smærri hópa eftir getu þar sem hverjum og einum gefst tækifæri á að læra grunnatriði íþróttarinnar á eigin hraða. Umsjónarþjálfari hópsins hefur mikla reynslu af þjálfun fatlaðra á skautum og hefur þjálfað þá keppendur sem keppt hafa fyrir Íslands hönd í Special Olympics 2005 og 2009. Auk þess hefur þjálfari flokksins lokið kennaramenntun frá Kennaraháskóla Íslands ásamt því að hafa lokið þjálfaramenntun á 2.stigi hjá ÍSÍ og ÍSS.