Bjarnarbúðin og skiptimarkaður

Hockey-EquipmentÍ tilefni hokkídagsins mikla laugardaginn 4. september ætlum við að vera með Bjarnarbúðina opna frá kl. 13 til 15 og er fólki boðið að vera með skiptimarkað á staðnum. Stjórnin verður einnig til staðar og tekur á móti skráningum.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

Skautastund

Skautastund_2010Skautafélag Bjarnarins býður 5-7 ára börnum (fædd 2003, 2004 og 2005) að koma með foreldrum sínum og læra að skauta í frábærri aðstöðu félagsins í Egilshöllinni. Tólf vikna námskeið kostar aðeins 12.600 kr. á barn en þess má geta að velkomið að byrja hvenær sem er á tímabilinu. Æfingar eru á laugardögum kl. 11.35-12.05 og gott er að mæta 15 mín. fyrir þann tíma til þess að fara í skautana og gera sig tilbúin. Ef þið eigið skauta og hjálm, þá er um að gera að nota það en fyrir þá sem ekki eiga er hægt að fá lánað hjá okkur. Þetta á við um bæði börn og foreldra. Það er frekar kalt á svellinu í upphafi svo hlý föt og góðir skíðavettlingar koma að góðum notum. Þegar á líður hitnar bæði börnum og fullorðnum.

Skráningardagar

Kæru foreldrar/forráðamenn.
Sumarið er senn á enda og því fer vetrardagskráin að byrja á fullu hjá okkur. Fyrsti æfingardagurinn verður 23. ágúst og verður einnig hægt að skrá krakkana þá, sjá upplýsingar um skráningu hér að neðan.
Skráningardagar
Skráning í íshokkí fyrir veturinn 2010-2011 verður eftirfarandi:
Mánudaginn 23. ágúst 17.30-19.30
Þriðjudaginn 24. ágúst 17.30-19.30
Fimmtudaginn 2. september 17.30-20.30
Laugardaginn 4. september 09.00-11.00
Skráningin verður við svellið í Egilshöll en umsjónarmaður skráningar er Þóranna, gjaldkeri Bjarnarins. Mikilvægt er að vera búin að athuga hversu mikið af frístundarkorti er

Stjórn hokkídeildar

Formaður:
Sigurður Sigurðsson
Simi: 8971630
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Gjaldkeri:
Þóranna Gunnarsdóttir
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Meðstjórnendur:
Elín Dögg Guðmundsdóttir
Simi: 6634123
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Ingibjörg Steindórsdóttir
Simi: 6988574
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Steinunn Erla Sigurbjörnsdóttir

Vilhelm Bernhöft

Dagskrá fyrir Íshokkí og Listskautarskóla

VÍKA 1 (3-7. ágúst)

VÍKA 2 (9-14. ágúst)

Víka 3 (16-21. ágúst)

Grunn upplýsingar